Í júní árið 2014 stofnuðu hjónin Brynjar Harðarson og Rut Hilmarsdóttir fyrirtækið L-7 ehf. Tilgangurinn var tvíþættur. Annars vegar rekstur tískuvöruverslunarinnar Siglósport og hins vegar uppsetning innréttinga en ýmis konar alhliða bygginga- og verktakastarfsemi bættist síðan við.
Í stjórn sitja þau hjón, Rut og Brynjar og hafa gert frá upphafi.
Brynjar Harðarson er byggingameistari og Rut Hilmarsdóttir er verslunarstjóri.
Um miðjan júlí 2014 tóku þau hjón við rekstri tískuvöruverslunarinnar Siglósport og hafa byggt hana upp með bættri þjónustu og aukinni vörubreydd. Með bættri þjónustu má til að mynda nefna merkingu á fatnaði fyrir einstaklinga og fyrirtæki ásamt því að bjóða upp á árstíðabundnar vörur.
Fljótlega eftir það fóru þau af stað með verktakahluta fyrirtækisins en upphaflega notuðu þau bílskúr við heimili þeirra að Lækjargötu 7 sem verkstæði. Þaðan er nafn fyrirtækisins komið. Í fyrstu var Brynjar eini starfsmaður verktakahlutans en verkefnin jukust ört og það kallaði á fleira starfsfólk. Fljótlega varð bílskúrinn alltof lítill og árið 2016 keypti L-7 stærra húsnæði og flutti þangað. Það var í gömlu húsi sem upphaflega var byggt 1976 sem trésmíðaverkstæði, en hafði hýst margskonar starfsemi í mörg ár, t.d. fiskvinnslu, og var mjög farið að láta á sjá. Áfram uxu verkefnin og starfsmönnum fjölgaði sem kallaði enn og aftur eftir stærra og betra húsnæði en starfsmenn eru núna 24 talsins, trésmiðir, píparar, múrarar, málarar, lærlingar og fjármála- og mannauðsstjóri.
Í nóvember 2021 fluttist starfsemin í stærra og betra húsnæði að Vesturtanga 1-5 sem er vel útbúið með skrifstofum, góðu kaffirými og aðstöðu fyrir smíðaverkstæði, pípara, múrara og málara.
L-7 verktakar er alhliða byggingaverktakafyrirtæki sem þjónustar bæði, fyrirtæki og einstaklinga í stærri sem og smærri verkefnum. En meðal annars má nefna nokkur stór verkefni sem að L-7 hefur tekið að sér eru breytingar á sjúkrahúsinu á Siglufirði, breytingar á Ráðhúsinu á Siglufirði, uppbygging hótels, utanhússklæðningar og alhliða endurbætur innanhúss.
L-7 verktakar eru til húsa að Vesturtanga 1-5, Siglufirði.